Skip to main content
Category

Fréttir

Opnunartími Ásatrúarfélagsins yfir páskana.

By Fréttir

Opnunartími Ásatrúarfélagsins yfir páskatímann.

Þórsdagur 2. apríl – Lokað

Freyjudagur 3. apríl – Lokað

Laugardagur 4. apríl – Opið hús frá kl. 14-16 (með fyrirvara um færð að hofinu).

Sunnudagur 5. apríl – Lokað

Mánudagur 6. apríl – Lokað

Týsdagur 7. Apríl – Skrifstofan opnar aftur á hefðbundnum tíma frá kl. 13-16.

Vorjafndægrablót á þremur stöðum á landinu 20. mars næstkomandi

By Fréttir

Vorjafndægrablót Ásatrúarfélagsins verða haldin á fjórum stöðum á landinu 20. mars næstkomandi.

Þau verða sem hér segir:

Kl. 18:00, í fjöru við Helguhól í Hvalfirði, þar sem vel sést til Geirshólma.

Á jafndægrum að vori helgar Leirárgoði blót í fjörunni til heiðurs Helgu Jarsldóttur sem segir frá í Harðar sögu Hólmverja.

Veitingar verða í boði Ásatrúarfélagsins að Bjarteyjarsandi að blóti loknu.

Verið öll velkomin.

—–

Föstudaginn 20.mars verður vorjafndægrum fagnað með blóti í Óslandi á Höfn í Hornafirði. Blótað verður kl 17:00 en ekki kl 19:00 eins og áður var auglýst. Guðlaug Elísabet helgar blótið. Allir velkomnir!

—–

Vorjafndægrablót verður haldið í Hlésey kl. 18:00.

Vinsamlega tilkynnið þátttöku inn á facebook: Hléseyjarblót eða með að senda póst á johanna@asatru.is

—–

Dalverjagoði helgar blót kl. 18:00 í Ásgarði á Hvolsvelli (Sjá kort).

Í kjölfar blóts verður kaffi í Valhöll (Sjá kort).

—–

Blótin okkar eru opin öllum.

 

Eddukvöld – Hymiskviða (25. mars í hofinu í Öskjuhlíð)

By Fréttir

Á næsta fundi leshópsins munum við lesa Hymiskviðu, þar sem meðal annars segir frá tilraun Þórs til að veiða miðgarðsorminn, en kvæðið er annars óvenjulegt í hópi eddukvæða fyrir skrautlega notkun sína á kenningum.

Það er ókeypis aðgangur og allir velkomnir en fundurinn hefst kl. 20:00.

Dr. Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík leiðir umræðuna.