Það verður ekkert Eddukvöld í kvöld vegna veikinda. Sjáumst að viku liðinni!
Að venju verður handverkskvöld hjá okkur í kvöld kl 20:00 í hofinu okkar í Öskjuhlíð. Kaffi á könnunni og allir velkomnir!
Minnum á opið hús á morgun laugardaginn 28. október. Að venju eru allir velkomnir og nóg kaffi á könnunni!
Síðar um kvöldið verður síðan Veturnáttablótið okkar en það hefst kl 20:00.
Hér má sjá hlekk á blótsauglýsinguna:
https://asatru.is/veturnattablot-i-oskjuhlid-28-oktober/
Að venju verður Eddukvöld í kvöld í hofinu okkar í Öskjuhlíð. Kaffi á könnu og allir velkomnir!
Troðfullt var á fyrirlestri Paul Acker á opnu húsi síðasta laugardag. Hér má sjá nokkrar myndir frá viðburðinum.
Myndir eftir: Sædís Hrönn Haveland













TILKYNNING.
Smá breyting á viðburði á dagatali félagsins:
Veturnáttablótið á Akureyri fær nýja staðsetningu.
Blótið verður haldið á laugardaginn í sal Zontafélagsins á Akureyri, Aðalstræti 54, kl 14:00. Eftir blótið verður boðið upp á kaffi í salnum. Allir velkomnir!”

Tilkynning: Það verður ekkert handverkskvöld í kvöld vegna kvennafrídags. Sjáumst að viku liðinni.
Önnur tímasetning auglýst síðar.
Veturnáttablót Ásatrúarfélagsins verður haldið 28. október sem er fyrsti vetrardagur.
Blótið hefst kl 20:00 við hofið okkar að Menntasveigi 15 í Öskjuhlíð. Í boði verða léttar veitingar og gott spjall. Allir velkomnir.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með að senda okkur tölvupóst á ,,skrifstofa@asatru.is”. Ef einhver mætir á ykkar vegum eða með ykkur í samfloti, endilega látið okkur vita á sama máta eða með að senda okkur tölvupóst.

Þróun dreka í Evrópu miðalda og á Íslandi.
Prófessor Paul Acker flytur fyrirlestur um rannsóknir sínar á drekum næstkomandi laugardag í hofinu okkar að Menntasveigi 15. Húsið opnar kl 14:00 og eru allir velkomnir en takmarkaður sætafjöldi er í boði.
Fyrirlesturinn verður á ensku, en hér er samantekt í orðum Pauls:
The Evolution of Dragons in Medieval Europe and lceland. Prof. Paul Acker Abstract: My paper, drawn from a book on dragons that I am currently writing, outlines changes in the nature and appearance of dragons from their beginnings in the classical period up through medieval times, first in Europe and then specifically in lceland. I discuss the image of ormar and drekar in the Eddas, in legendary sagas, and in runestones and Icelandic manuscript art.
Um Paul á íslensku:
Paul Acker er prófessor á eftirlaunum í forn ensku og forn íslensku frá Háskólanum í Saint Louis. Meðal verka hans í forn íslensku eru þýðingar á tveimur Íslendingasögum, ritstjórn (ásamt öðrum) á Eddukvæðum, alfræðiorðabók um Norðurlönd á miðöldum, og greinarnar “Deyddur af drekum” og “Drekar í íslenskri list”.
Hann heimsækir Ísland reglulega þar sem hann stundar rannsóknir á forn íslensku við Háskóla Íslands.
About Paul in english:
Paul Acker is an emeritus professor of Old English and Old Norse from Saint Louis University. His works on Old Norse include translations of two Icelandic sagas, co-edited collections on Eddic poetry and the Encyclopedia of Medieval Scandinavia, and articles on ‘Death by Dragons’ and ‘Dragons in Icelandic Art’. He is a frequent visitor to Iceland where he researches Old Norse at the University.
