


Við minnum á Gróðurblótið að Mógilsá, laugardaginn 30. maí kl 14:00.
Alda Vala Ásdísardóttir helgar blótið og í kjölfarið verður grillað og spjallað saman fram eftir degi í fallegu umhverfi.
Grillaðar pylsur með meðlæti, ásamt ávaxasafa, vatni og kaffi.
Munið að klæða ykkur eftir veðri þótt alltaf sé skjól í skóginum.
Öll velkomin!
——————————
Staðsetning: Mógilsá er við Þjóðveg 1, innst í Kollafirði. Beygt er af Þjóðveginum við Esjustofu og strax til hægri. Eftir spölkorn á afleggjaranum meðfram tjörninni er heimreiðin að Mógilsá á vinstri hönd.


Anna Leif Leirárgoði helgar blót við Grýluvog í Flatey á Breiðafirði 23. maí næstkomandi. Blótið hefst kl. 14:00.
Við fögnum sumri og vaxandi tungli.

Það er öllum frjálst að mæta í kaffi, spjall og handverk í hofið okkar í Öskjuhlíð þriðjudagskvöldið 19. maí.

Það er mikið um að vera 16. maí en við verðum að sjálfsögðu með opna húsið á sínum stað í hofinu í Öskjuhlíð frá kl. 14:00-16:00.
Sjáumst í kaffispjalli.

Á staðnum verður borðspilasafn Ásatrúarfélagsins, nördagoðarnir Jökull Tandri og Haukur og eitthvað af nasli og tilheyrandi.
Öll velkomin, einsömul eða með vini, með snakk í púkkið eða án þess, með vel valin borðspil úr eigin safni eða án spila.
Mæting í hofið kl. 19:30.

Það er opið hús á laugardaginn líkt og venjulega.

Handverkskvöld á þriðjudagskvöld.
Það er öllum frjálst að mæta í kaffi, spjall og handverk í hofið okkar í Öskjuhlíð kl. 20:00 þriðjudagskvöldið 5. maí.

Það er opið hús á laugardaginn líkt og venjulega í hofinu okkar í Öskjuhlíð.
Það er kaffi á könnu og öllum frjálst að mæta í kaffispjall um himna og geima.

Leshópurinn heldur áfram með umræður um Hyndluljóð á næsta Eddukvöldi, þann 6. maí.
Ólíkt öðrum eddukvæðum eru Hyndluljóð ekki varðveitt í Konungsbók eða öðrum eddukvæðahandritum. Kvæðið er varðveitt í Flateyjarbók, sem annars geymir konungasögur, enda er ættartala konunga fyrirferðamikil í kvæðinu. Snorra-Edda inniheldur nokkur erindi úr kvæðinu þar sem það er titlað Völuspá hin skamma. Kvæðið segir af ferð Freyju til Hyndlu, að sækja ættartölu Óttars svo hann geti gengið að arfi sínum.
Dr. Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík leiðir umræðuna.
