Skip to main content

Landvættablót í öllum landsfjórðungum fimmtudaginn 1. desember

Eftir nóvember 25, 2022Fréttir
Fimmtudaginn næstkomandi verða haldin landvættablót í öllum landsfjórðungum.
Blótin hefjast öll kl 18:00 og verða sem hér segir;
Blót Bergrisans við Garðskagavita á Reykjanesi
Jóhanna Harðardóttir helgar blótið.
Kaffi eftir blótið verður á veitingastaðnum við Garðskagavita.
Blót á Hamarkotstúni á Akureyri
Ragnar Elías Ólafsson helgar blótið.
Landvættablót Griðungsins á Austurvelli á Ísafirði
Elfar Logi Haukdalsgoði helgar blótið.
Boðið verður upp á ís í brauðformi.
Blót Drekans fer fram á Þingskálum á Mýrum í Hornafirði
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir helgar blótið.
Kjötsúpa og kaffi heima hjá Guðlaugu í Þingskálum eftir blót.
Landvættablót á Þingvöllum.
Hilmar Örn Hilmarsson helgar blótið.
Heitt kakó verður með í ferðum.