Skip to main content
Category

Fréttir

Framboð til Lögréttu

By Fréttir
Framboð til lögréttu Ásatrúarfélagsins á allsherjarþingi 2025
Kjörnefnd allsherjarþings 2025 auglýsir hér með eftir framboðum til lögréttu, stjórnar Ásatrúarfélagsins.
Samkvæmt 29. grein laga Ásatrúarfélagsins skal í ár kosið um þrjá fulltrúa í lögréttu til tveggja ára, tvo varamenn til eins árs, tvo skoðunarmenn reikninga og tvo fulltrúa til kjörnefndar á allsherjarþingi 2026.
Nánari upplýsingar má finna í skráningarformi sem er að finna hér.
Þar skal framboðum skilað. Framboðsfrestur rennur út laugardaginn 25. október kl. 14:00.
Þeir sem bjóða sig fram til aðalstjórnar en ná ekki kjöri geta boðið sig fram til varastjórnar.
Kjörnefndina skipa:
Unnar Reynisson (formaður kjörnefndar) – Gjaldkeri Ásatrúarfélagsins, valinn af lögréttu
Haukur Bragason – Lundarmannagoði, kosinn á allsherjarþingi 2024
Jökull Tandri Ámundason – Dalverjagoði og staðgengill allsherjargoða, kosinn á allsherjarþingi 2024

Í aðdraganda Allsherjarþings

By Fréttir

Vegna komandi Allsherjarþings 1. nóvember næstkomandi, þá er hér minnt á að samkvæmt 38. grein starfsreglna Ásatrúarfélags þarf að skila tilkynningu að tillögum til lagabreytinga með minnst sex vikna fyrirvara, og rennur sá frestur út mánudaginn 22. september næstkomandi. Hægt er að skila tillögum á netföngin skrifstofa@asatru.is og logsogumadur@asatru.is. Koma þarf fram í tilkynningu hvaða lagagreinum verður lagt til að breyta og vera skýrt í hverju tillagan er fólgin, til dæmis með tillögu að orðalagi. Endanlegt orðalag þarf að liggja fyrir þegar boðað er til allsherjarþings með tveggja vikna fyrirvara, en samkvæmt 38. greininni þarf þá að kynna tillöguna á samfélagsmiðlum félagsins.

Allsherjarþing verður boðað með tveggja vikna fyrirvara á heimasíðu félagsins og á samfélagsmiðlum. Berist lagabreytingatillögur verða þær kynntar samhliða boðuninni. Ennfremur verður auglýst eftir framboðum í þeirri auglýsingu, en framboðsfrestur rennur út viku fyrir allsherjarþing. Framboðum skal skila til kjörnefndar, en í henni sitja Unnar Reynisson gjaldkeri, Jökull Tandri Ámundason Dalverjagoði og Haukur Bragason Lundarmannagoði.

Yfirlýsing frá goðum

By Fréttir

Goðar Ásatrúarfélagsins krefjast þess að stjórnvöld grípi tafarlaust til aðgerða gegn Ísrael og þjóðarmorði á palestínsku þjóðinni. Þögn og aðgerðaleysi jafngildir samsekt, Ísland má ekki sitja hjá. Við krefjumst þess að stjórnvöld beiti sér af fullum þunga á alþjóðavettvangi til að stöðva ofbeldið, vernda saklausa borgara og tryggja að mannhelgi og mannréttindi séu virt.

Jökull Tandri nýr staðgengill Allsherjargoða

By Fréttir

Jökull Tandri Ámundason Dalverjagoði var á fundi lögréttu kvöldið 11. september kjörinn sem nýr staðgengill Allsherjargoða. Hann hlaut vígslu sem Dalverjagoði 2023.  Jökull Tandri er matreiðslu- og framreiðslumeistari að mennt með mikla reynslu úr framkomu og félagsstarfi. Hann er 35 ára gamall og er yngsti goði Ásatrúarfélagsins.

Alda Vala Ásdísardóttir Hvammverjagoði var áður í hlutverki staðgengils en hún lét af starfi fyrr í sumar að eigin ósk og er henni þakkað fyrir vel unnin störf

Þingblót

By Fréttir

Þingblót verður haldið á Þingvöllum að venju Þórsdag í 10. viku sumars, sem fellur á 26. júní.

Blótið hefst kl. 18.

Safnast verður saman við flötina að neðan kl. 17:30 og þaðan gengið upp í Lögberg.

Það gæti orðið vætusamt svo blótgestir eru beðnir að klæða sig eftir veðri.

Að lokinni athöfn verður gengið til blótveislu á vellinum, boðið verður upp á grillaðar pylsur og drykki.

Allir velkomnir.

Blót á sumarsólstöðum 21. júní

By Fréttir

Sumarsólstöður eru 21. júní n.k. og verður víða blótað:

  • Höfn kl. 14
    Guðlaug helgar blótið.
  • Múla, Álftarfirði kl. 14
    Baldur helgar blótið.
  • Hamarskotstúni, Akureyri kl. 18
    Ragnar helgar blótið.
  • Siglufirði kl. 22
    Sigurður Mar helgar blótið.
  • í Ásheimum, Skagafirði kl. 19
    Árni helgar blótið.
  • í Haukadal, Dýrafirði
    Elfar  Logi helgar blótið.
  • í Grundarfirði, í Brekkuskógi
    Jónína Berg helgar blótið.

Blót á Þingvöllum verður þórsdag, 10. viku sumars og verður auglýst sér.

 

 

Opinn umræðufundur 7. júní

By Fréttir
Laugardaginn 7. júní nk. kl 14 verður opinn umræðufundur fyrir félagsmenn í Hofi Ásatrúarfélagsins að Menntasveigi 15, með lögsögumanni og fleirum úr lögréttu – sem er stjórn félagsins. Þar verður farið yfir nokkur mál sem hafa verið í vinnslu hjá félaginu. Boðið verður upp á streymi frá fundinum og þeir sem vilja fylgjast með beiðnir um sækja um aðgang á netfanginu asatru(at)asatru.is.
Til umræðu eru eftirfarandi mál:
1. Staða hofbyggingar og framhald hennar
2. Stofnun Samfélagsviðurkenninga Ásatrúarfélagsins
3. Ásatrúarfélagið og náttúruvernd
4. Framtíð líkbrennslu á Íslandi.

Gróðurblót og Vorblót 31. maí og 1. júní

By Fréttir
Gróðurblótið að Mógilsá við Esjurætur í Kollafirði verður haldið laugardaginn 31. maí n.k. og hefst kl. 14.
Boðið verður upp á grillaðar pylsur, eggjaleit fyrir krakkana og skemmtilega útivist.
Alda Vala Hvammverjagoði helgar blótið.
Allir velkomnir.
Vorblót í Stykkishólmi verður haldið sunnudaginn 1. júní uppi í Nýrækt, Skógrækt Stykkishólms kl. 15.
Fögnum vorinu og sólinni, gróandanum og ungviðinu.
Öllum velkomið að mæta, hvort sem fólk er í félaginu eða ekki.
Stöldrum svo við í lundinum góða í kaffi og með því og skemmtilegt spjall.
Jónína Þórsnesgoði helgar blótið.

Nýtt dagatal komið í póst

By Fréttir

 

Dagatal Ásatrúarfélagsins fyrir almanaksárið 2025-26 er komið í póst.

Félagsmenn geta því vænst þess að eintak berist á heimili þeirra á næstu dögum, hafi það ekki nú þegar borist.