
Föst kennsla hefst svo eftir áramót og verður kennt á eftirfarandi sunnudögum:
6.tími 19. apríl. kl 13:00

Eftirfarandi tillögur að siðareglum hafa borist frá Ásdísi Elvarsdóttur og eru lagðar fyrir Allsherjarþing næstkomandi laugardag.
Til að skoða tillögurnar þá skal smella HÉR.
Þið sem hafið meldað ykkur á Veturnáttablótið næsta laugardag, vinsamlegast látið vita hvað þið ætlið að koma með í matinn. Þetta er sem sagt Pálínuboð þar sem allir leggja eitthvað til.
Þið getið sent tölvupóst á skrifstofa@asatru.is til að láta okkur vita hvað þið hyggist mæta með.
Hlökkum til að heyra frá ykkur.

Allsherjarþing Ásatrúarfélagsins 2025 verður haldið í hofi félagsins að Menntasveigi 15 í Öskjuhlíð laugardaginn 1. nóvember kl 14:00. Allir félagar Ásatrúarfélagsins eiga rétt til setu á allsherjarþingi og hafa þar málfrelsi og tillögurétt. Atkvæðisréttur og kjörgengi miðast við 18 ára aldur.
Þá er hér með minnt á framboðsfrest til stjórnar felagsins og varamönnum í stjórn, og einnig í önnur embætti sem kjörið er í á allsherjarþingi. Framboðsfrestur rennur út laugardaginn 25. október, en þeir sem bjóða sig fram til stjórnar en ná ekki kjöri geta þó boðið sig fram sem varamenn í stjórn á þinginu. Í kjörnefnd sitja:
Jökull Tandri Ámundason
Haukur Bragason
Unnar Reynisson
Til að bjóða sig fram skal skrá sig HÉR
Alls hafa borist 10 lagabreytingatillögur frá Ásdísi Elvarsdóttur, varamanni í stjórn sem á sæti í laganefnd. Um er að ræða 10 tillögur að siðareglum fyrir félagið.
Dagskrá:
• Skýrsla lögréttu borin upp til umræðu og staðfestingar.
• Reikningar lagðir fram til umræðu og staðfestingar.
• Lagabreytingar og aðrar tillögur.
• Kosning í lögréttu.
• Kosning skoðunarmanna reikninga, í nefndir og í aðrar trúnaðarstöður.
• Önnur mál.

Bjóðum alla velkomna í hofið okkar laugardaginn 18. október í opið hús. Við opnum kl 14:00.
Kaffi á könnunni!


Næstkomandi laugardag þann 11. október klukkan 13:30 verður opinn umræðufundur í hofi Ásatrúarfélagsins í menntasveigi um framhald hofbyggingar Ásatrúarfélagsins. Á fundinum verður farið yfir fjárhagsstöðu félagsins, sem orðin er afar góð, og standa vonir til þess að undirbúningur frekari framkvæmda geti fljótlega hafist. Gert er ráð fyrir góðum tíma fyrir spurningar og umræður.
Fundinum verður streymt og þeir sem vilja sitja hann í fjarfundi eru beðnir á að skrá sig hér. Zoom-linkur verður sendur fljótlega áður en fundurinn hefst.
Athugið að fundurinn er einungis opinn félagsmönnum í Ásatrúarfélaginu.
