


Óskað er eftir fulltrúum í laganefnd Ásatrúarfélagsins.
Hlutverk nefndarinnar er að fara yfir lög og starfsreglur félagsins og gera tillögur að viðeigandi úrbótum þar sem félagið hefur vaxið og dafnað síðan lögin voru samin og grunnur lagður að félaginu.
Viðkomandi þarf að vera félagi í Ásatrúarfélaginu, lögráða og sjálfráða. Einnig er kostur að viðkomandi hafi þekkingu á félagsmálum og þeirri lagaumgjörð sem því fylgir.
Laganefnd er skipuð af allsherjargoða og lögréttu og situr til næsta allsherjarþings þegar kosið verður í nýja nefnd.
Áhugasömum er bent á að hafa samband í gegnum netfangið skrifstofa@asatru.is

Viðburðir Ásatrúarfélagsins í desember
Nánari upplýsingar um landvættablótin í eru hér á vefsíðunni undir liðnum dálknum „Fréttir”.
Fyrirlestrar í hofinu í Öskjuhlíð
Nánari upplýsingar um fyrirlestra eru hér á vefsíðunni undir liðnum dálknum „Fréttir”.
Ítarlegar upplýsingar um jólablótin berast er nær dregur.
Fastir liðir
Dagrún Ósk Jónsdóttir og Jón Jónsson þjóðfræðingar á Ströndum rifja upp næstum því gleymdar sögur um íslensku jólafólin í hofi Ásatrúarfélagsins 20. desember næstkomandi.
Flestir þekkja gamlar og ljótar sögur um Grýlu sem var hryllileg mannæta og jólasveinana sem forðum voru til vandræða hvar sem þeir komu. Sumir í fjölskyldunni eru samt að mestu gleymdir eins og fyrri eiginmenn Grýlu og jólasveinar eins og Lungnaskvettir, Flórsleikir eða Flotnös.
Sagt verður frá óhugnanlegum sögum og þjóðtrú um Grýlu og hennar hyski. Sumt af því hentar varla mjög ungum börnum eða viðkvæmum sálum en öll sem þora eru hjartanlega velkomin!
Þau feðgin gáfu einnig út bók um efnið núna fyrir jólin sem ber yfirskriftina Gömlu íslensku jólafólin: fróðleikur og ljótar sögur, og verða með hana með sér.
Húsið opnar kl 14:00 og er öllum frjálst að mæta. Best að mæta tímanlega til að fá sæti.

Hver veit nema lagarfljótsormurinn verði með í för? Þá bjóðum við einnig upp á jólaföndur fyrir börnin, þar sem við málum köngla og föndrum saman, boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur.

Laugardaginn 13. desember n.k. mun Stefán Pálsson sagnfræðingur og félagsmaður í Ásatrúarfélaginu halda erindi í hofinu okkar í Öskjuhlíð í tilefni útgáfu myndasögunnar Sýnir Völvunnar sem kom út á dögunum.
Myndasagan er fimmtánda og síðasta bókin í sagnaflokknum um Goðheima (danska: Valhalla) eftir Peter Madsen. Eftir langa bið er sagnaflokknum loksins lokað á íslensku. Þessar frábæru myndasögur hafa mótað hugmyndir heilu kynslóðanna um Æsi og norræna goðafræði.
Í erindinu verður fjallað um útgáfusögu þessara merkilegu dönsku myndasagna sem hófu göngu sína sem verkefni kornungra manna sem vildu búa til svar Dana við Ástríksbókunum eða Lukku-Láka en endaði í djúpri rannsókn á norrænum sagnaarfi.
Erindi Stefáns er ókeypis og opið öllum en húsið opnar kl 14:00. Það er takmarkað framboð af sætum svo best að mæta tímanlega.


Ætlum að hefja aftur handverkskvöldin.
Við bjóðum alla velkomna í hofið okkar í Öskjuhlíð næstkomandi þriðjudagskvöld kl 20:00.
Kaffi á könnunni þar sem við sitjum við hannyrði og spjall.
Hlökkum til að sjá ykkur.