Að venju er handverkskvöld þriðjudagskvöldið 3. mars. Allir velkomnir í hofið okkar í Öskjuhlíð í kaffi og handverk.

Að venju er handverkskvöld þriðjudagskvöldið 3. mars. Allir velkomnir í hofið okkar í Öskjuhlíð í kaffi og handverk.

Eyþór Guðmundsson bókasafnari og grúskari segir frá tilurð og starfi verkefnisins Old Icelandic Books á opnu húsi laugardaginn 28. febrúar.
Húsið opnar kl. 14 og hefst fyrirlesturinn um kl. 14:30. Eyþór Guðmundsson bókasafnari frá Beitingsstöðum hefur undanfarin ár haldið úti verkefninu Old Icelandic books sem hefur það markmið að varðveita þann menningararf sem liggur í íslenskum fornbókmenntum.
Eyþór á viðamikið bókasafn fágætra bóka, sem inniheldur bækur sem prentaðar voru fyrr á öldum, en elsta eintakið er biblía á latínu sem var í eigu Dr Péturs Péturssonar biskups á árinum 1866 – 1889. Sú biblía var prentuð árið 1578 og er því eldri en Guðbrandsbiblía. Hann safnar ekki bara bókum heldur gerir einnig við þær og dyttar að bókbandi þeirra. Við slíkar lagfætingar kemur oft ýmislegt óvænt í ljós, eins og handritabrot. Gegnum starf sitt hefur Eyþór fundið sitt hvað af slíku, en eitt elsta handritabrot sem hann á er talið vera um 600 ára.
Fyrirlesturinn er ókeypis og opinn öllum.

Að venju er opið hús á laugardaginn.
Það er kaffi á könnu og öllum frjálst að mæta í kaffispjall um himna og geima.


Það er handverkskvöld þriðjudagskvöldið 17. febrúar í hofinu okkar í Öskjuhlíð. Allir velkomnir líkt og alltaf í spjall og handverk.




Fyrirlestradagskrá vetrarins heldur áfram á opnu húsi laugardaginn 7. febrúar nk. en að þessu sinni munu tveir goðar okkar flytja fræðsluerindi og segja frá athöfnum þeirra.
Goðarnir Haukur og Jökull Tandri hafa leitt fjölmargar athafnir á vegum Ásatrúarfélagsins síðastliðin ár og þróað með sér hvor sinn stílinn. Í fyrirlestrinum segja þeir frá heiðnum athöfnum nútímans, áhersla verður á hjónavígsluathafnir en einnig sagt frá nafngjafar- og siðfestuathöfnum sem og útförum sem þeir hafa stýrt.
Þeir segja frá því hvað þeir taka úr fornum heimildum og hverju þeir bæta við úr nútímanum, hvernig athafnir þeirra hafa þróast og hversu fjölbreyttar og ólíkar athafnirnar geta verið. Þeir sýna myndir, rifja upp minnisstæð atvik og svara spurningum úr sal.
Öll velkomin!

Þá er komið að næsta handverkskvöldi sem verður með hefðbundnu sniði þetta skiptið.
Það er öllum frjálst að mæta í kaffi, spjall og handverk í hofið okkar í Öskjuhlíð þriðjudagskvöldið 3. febrúar kl 20:00.
