Skip to main content
Category

Fréttir

Ljósmyndir frá Völvuhelgi (23. og 25 janúar).

By Fréttir

Gudrun Victoria Gotved mætti til okkar í hofið um helgina þar sem hún var með þrjá viðburði við miklar og góðar undirtektir.

Á föstudeginum hélt Gudrun námskeið í rúnum og rúnagerð í fullu húsi.

Á sunnudeginum hélt hún tvö erindi, annars vegar um danskar og íslenskar huldurverur og hins vegar um hlutverk völvunnar.

Hér má sjá myndir og myndbönd frá helginni, en til að fræðast meira um Gudrunu þá bendum við á eftirfarandi hlekki:

 

Völvuhelgin nálgast.

By Fréttir

Gudrun Victoria Gotved kemur til okkar í hofið í Öskjuhlíð á Völvuhelgi 23. og 25. janúar næstkomandi.

Á föstudeginum mun Gudrun endurtaka námskeið frá í fyrra um rúnir og rúnagerð. Námskeiðið hefst kl. 19:00. og kostar 3.000 kr. (Senda póst á skrifstofa@asatru.is til að skrá sig).

Sunnudaginn 25. janúar mun Gudrun mæta aftur í hofið og halda tvo fyrirlestra. Fyrra erindið hefst kl. 14:00 og fjallar um hulduverur utan Íslands og samband Gudrunar við þær. Gudrun mun einnig koma inn á samband sitt við íslenskar hulduverur.

Síðar sama dag verður Gudrun með annað erindi sem hefst kl. 17:00 og fjallar um verkfæri Völvunnar. „Völva er svokölluð vitur kona. Hún veitir leiðsögn, hún læknar og er sjáandi. Sumir kalla okkur hinar norrænu seiðkonur (norse shaman)”.

Meira hér: https://asatru.is/volvuhelgi-23-og-25-januar-2/

Ókeypis aðgangur er á báða fyrirlestra og öllum opnir. Best er að mæta tímanlega til að tryggja sér sæti.

Eddukvöld 28. janúar – Alvíssmál.

By Fréttir

Alvíssmál verða á dagskrá leshópsins að sinni, en kvæðið varð einnig fyrir valinu á dagatali félagsins.

Alvíssmál eru varðveitt í Konungsbók eddukvæða, en kvæðið er spurningakeppni milli dvergsins Alvíss og Þórs. Alvíss vill kvænast dóttur Þórs, en Þór reynir á þekkingu hans með ýmsum spurningum.

Dr. Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík mun leiða umræðuna.