Fyrsta opna húsið eftir sumarfrí verður núna laugardaginn 10. ágúst. Að venju eru allir velkomnir og við hlökkum til að sjá ykkur!
Við fengum til okkar heimsókn háskólanema frá Vermont í Bandaríkjunum ásamt íslenskum kennara sínum síðastliðinn föstudag.
Við áttum góða stund saman með veitingum og skemmtilegu spjalli.



Nýlega var lokið við að ganga frá útvegg á félagsaðstöðu okkar í Öskjuhlíð og í leiðinni komið í veg fyrir hvimleiðan leka undir vegginn.
Jafnframt var skiltið sunnan við hofið endurnýjað
. 


Njarðarblót verður að venju haldið síðasta sunnudag júlímánaðar sem á þessu ári ber upp á 28. júlí.
Blótið verður helgað kl. 16:00 (athugið, ekki kl. 13:00 eins og síðustu ár) í lystigarðinum Fossflöt í Hveragerði.
Öll velkomin.
Minnum á að það verður ekkert opið hús á morgun vegna sumarleyfa í júlí.
Í dag eru liðin 100 ár frá fæðingu Sveinbjörns Beinteinssonar skálds og allsherjargoða Ásatrúarfélagsins.
Við minnumst Sveinbjörns í dag og bjóðum alla velkomna á minningarathöfn við hofið okkar í Öskjuhlíð kl 19:00 í kvöld.

Fimmtudagskvöldið 4. júlí n.k. kl 19:00 verður minningarathöfn um Sveinbjörn Beinteinsson fyrsta allsherjargoða Ásatrúarfélagsins á 100 ára afmæli hans.
Mæting er við minnisvarðann um Sveinbjörn fyrir utan byggingarsvæði hofsins í Öskjuhlíð.
Kaffi og kökur í boði og allir velkomnir.

Rannsóknir á víkingum.
Pallborðsumræður um rannsóknir á víkingum verða í sal Þjóðminjasafnsins miðvikudaginn 3. júlí klukkan 13:00.
Samankomnir eru sérfræðingar á ólíkum sviðum.
Fólk er hvatt til að mæta með spurningar sem fjölhliða svör fást við.
Nánari upplýsingar í meðfylgjandi myndum.
————-
Researching Vikings.
A panel discussion on Viking research in the auditorium of the National Museum of Iceland Wednesday, July 3rd at 13:00.
The discussion panel will include experts in varied fields of Viking-age research who will discuss their various approaches to Viking research and some of their intriguing findings.
We encourage people to attend and be primed with questions about topics related to Viking research.
More information in the attached flyers.


Það verður ekkert opið hús laugardaginn 29. júní vegna framkvæmda. Sjáumst að viku liðinni.
