Næsta Eddukvöld munum við lesa Hárbarðsljóð, og rýnum í húmor eddukvæðanna, þar sem Þór á í orðaskaki við ferjumann.
Allir velkomnir í hofið okkar í Öskjuhlíðina í fræðslu og spjall.
Dr. Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík leiðir umræðuna.

Næsta Eddukvöld munum við lesa Hárbarðsljóð, og rýnum í húmor eddukvæðanna, þar sem Þór á í orðaskaki við ferjumann.
Allir velkomnir í hofið okkar í Öskjuhlíðina í fræðslu og spjall.
Dr. Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík leiðir umræðuna.


Goðar Ásatrúarfélagsins fordæma þau ummæli sem kanslari Kaþólsku kirkjunnar viðhafði um samkynhneigð og hinsegin fólk og hafa verið til umræðu í fjölmiðlum síðan í gær.
Goðar félagsins lýsa furðu sinni á því að einstaklingur í forsvari fyrir trú- og lífsskoðunarfélag virðist telja sig hafinn yfir m.a. almenn hegningarlög. Með lögum skal land byggja.
Fjölbreytileiki mannhafsins gerir samfélag okkar betra og það er laga- og siðferðisleg skylda þeirra sem þjónusta landsmenn að taka þeim eins og þeir eru og standa vörð um réttindi þeirra.

Að venju þá er opið hús í hofinu okkar í Öskjuhlíð á laugardaginn frá kl. 14-16.
Öllum frjálst að mæta í kaffi og spjall.

Við þökkum Eyþóri Guðmundssyni fyrir erindi sitt um verkefnið Old Icelandic Books sem haldið var sl. laugardag á opnu húsi í hofi Ásatrúarfélagsins.
Myndir tók Guðlaug Halldórudóttir.



Að venju er handverkskvöld þriðjudagskvöldið 3. mars. Allir velkomnir í hofið okkar í Öskjuhlíð í kaffi og handverk.

Eyþór Guðmundsson bókasafnari og grúskari segir frá tilurð og starfi verkefnisins Old Icelandic Books á opnu húsi laugardaginn 28. febrúar.
Húsið opnar kl. 14 og hefst fyrirlesturinn um kl. 14:30. Eyþór Guðmundsson bókasafnari frá Beitingsstöðum hefur undanfarin ár haldið úti verkefninu Old Icelandic books sem hefur það markmið að varðveita þann menningararf sem liggur í íslenskum fornbókmenntum.
Eyþór á viðamikið bókasafn fágætra bóka, sem inniheldur bækur sem prentaðar voru fyrr á öldum, en elsta eintakið er biblía á latínu sem var í eigu Dr Péturs Péturssonar biskups á árinum 1866 – 1889. Sú biblía var prentuð árið 1578 og er því eldri en Guðbrandsbiblía. Hann safnar ekki bara bókum heldur gerir einnig við þær og dyttar að bókbandi þeirra. Við slíkar lagfætingar kemur oft ýmislegt óvænt í ljós, eins og handritabrot. Gegnum starf sitt hefur Eyþór fundið sitt hvað af slíku, en eitt elsta handritabrot sem hann á er talið vera um 600 ára.
Fyrirlesturinn er ókeypis og opinn öllum.

Að venju er opið hús á laugardaginn.
Það er kaffi á könnu og öllum frjálst að mæta í kaffispjall um himna og geima.


Það er handverkskvöld þriðjudagskvöldið 17. febrúar í hofinu okkar í Öskjuhlíð. Allir velkomnir líkt og alltaf í spjall og handverk.
