Skip to main content
All Posts By

Ásatrúarfélagið

Að bjarga bók (Fyrirlestur 28. febrúar í hofi Ásatrúarfélagsins).

By Fréttir

Eyþór Guðmundsson bókasafnari og grúskari segir frá tilurð og starfi verkefnisins Old Icelandic Books á opnu húsi laugardaginn 28. febrúar.

Húsið opnar kl. 14 og hefst fyrirlesturinn um kl. 14:30. Eyþór Guðmundsson bókasafnari frá Beitingsstöðum hefur undanfarin ár haldið úti verkefninu Old Icelandic books sem hefur það markmið að varðveita þann menningararf sem liggur í íslenskum fornbókmenntum.

Eyþór á viðamikið bókasafn fágætra bóka, sem inniheldur bækur sem prentaðar voru fyrr á öldum, en elsta eintakið er biblía á latínu sem var í eigu Dr Péturs Péturssonar biskups á árinum 1866 – 1889. Sú biblía var prentuð árið 1578 og er því eldri en Guðbrandsbiblía.  Hann safnar ekki bara bókum heldur gerir einnig við þær og dyttar að bókbandi þeirra. Við slíkar lagfætingar kemur oft ýmislegt óvænt í ljós, eins og handritabrot. Gegnum starf sitt hefur Eyþór fundið sitt hvað af slíku, en eitt elsta handritabrot sem hann á er talið vera um 600 ára.

Fyrirlesturinn er ókeypis og opinn öllum.

 

Eddukvöld 25. febrúar í hofinu í Öskjuhlíð

By Fréttir
Eftir að hafa lokið við Vafþrúðnismál síðast ætlar leshópurinn að vinda sér yfir í Grímnismál, en það er – eins og Vafþrúðnismál – svokallað heimsmyndarkvæði.
Kvæðið er ort í orðastað Óðins sem sækir konung og syni hans heim en sú heimsókn reynist örlagarík. Annar sona konungs fær hlutdeild að þekkingu Óðins um goðheima en aðrir fara á mis við hana.
Dr. Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík leiðir umræðuna.

Eddukvöld 11. febrúar – Vafþrúðnismál.

By Fréttir
Vafþrúðnismál verða tekin fyrir á næsta fundi leshópsins í hofinu okkar í Öskjuhlíð.
Síðast ræddum við um Alvíssmál og kenningar fræðimanna um að þau séu e.t.v. skopstæling á Vafþrúðnismálum. Því er tilvalið að demba sér yfir í Vafþrúðnismál, en kvæðið varðveitir mikinn fróðleik um heiðna heimsmynd.
Húsið opnar kl 20:00, en Dr. Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík mun leiða umræðuna. Gott er að mæta með Eddukvæðin með sér!

Tveir goðar segja frá athöfnum félagsins á opnu húsi laugardaginn 7. febrúar

By Fréttir

Fyrirlestradagskrá vetrarins heldur áfram á opnu húsi laugardaginn 7. febrúar nk. en að þessu sinni munu tveir goðar okkar flytja fræðsluerindi og segja frá athöfnum þeirra.

Goðarnir Haukur og Jökull Tandri hafa leitt fjölmargar athafnir á vegum Ásatrúarfélagsins síðastliðin ár og þróað með sér hvor sinn stílinn. Í fyrirlestrinum segja þeir frá heiðnum athöfnum nútímans, áhersla verður á hjónavígsluathafnir en einnig sagt frá nafngjafar- og siðfestuathöfnum sem og útförum sem þeir hafa stýrt.

Þeir segja frá því hvað þeir taka úr fornum heimildum og hverju þeir bæta við úr nútímanum, hvernig athafnir þeirra hafa þróast og hversu fjölbreyttar og ólíkar athafnirnar geta verið. Þeir sýna myndir, rifja upp minnisstæð atvik og svara spurningum úr sal.

Öll velkomin!

Ljósmyndir frá Völvuhelgi (23. og 25 janúar).

By Fréttir

Gudrun Victoria Gotved mætti til okkar í hofið um helgina þar sem hún var með þrjá viðburði við miklar og góðar undirtektir.

Á föstudeginum hélt Gudrun námskeið í rúnum og rúnagerð í fullu húsi.

Á sunnudeginum hélt hún tvö erindi, annars vegar um danskar og íslenskar huldurverur og hins vegar um hlutverk völvunnar.

Hér má sjá myndir og myndbönd frá helginni, en til að fræðast meira um Gudrunu þá bendum við á eftirfarandi hlekki: