



Næstkomandi laugardag þann 11. október klukkan 13:30 verður opinn umræðufundur í hofi Ásatrúarfélagsins í menntasveigi um framhald hofbyggingar Ásatrúarfélagsins. Á fundinum verður farið yfir fjárhagsstöðu félagsins, sem orðin er afar góð, og standa vonir til þess að undirbúningur frekari framkvæmda geti fljótlega hafist. Gert er ráð fyrir góðum tíma fyrir spurningar og umræður.
Fundinum verður streymt og þeir sem vilja sitja hann í fjarfundi eru beðnir á að skrá sig hér. Zoom-linkur verður sendur fljótlega áður en fundurinn hefst.
Athugið að fundurinn er einungis opinn félagsmönnum í Ásatrúarfélaginu.
Vegna komandi Allsherjarþings 1. nóvember næstkomandi, þá er hér minnt á að samkvæmt 38. grein starfsreglna Ásatrúarfélags þarf að skila tilkynningu að tillögum til lagabreytinga með minnst sex vikna fyrirvara, og rennur sá frestur út mánudaginn 22. september næstkomandi. Hægt er að skila tillögum á netföngin skrifstofa@asatru.is og logsogumadur@asatru.is. Koma þarf fram í tilkynningu hvaða lagagreinum verður lagt til að breyta og vera skýrt í hverju tillagan er fólgin, til dæmis með tillögu að orðalagi. Endanlegt orðalag þarf að liggja fyrir þegar boðað er til allsherjarþings með tveggja vikna fyrirvara, en samkvæmt 38. greininni þarf þá að kynna tillöguna á samfélagsmiðlum félagsins.
Allsherjarþing verður boðað með tveggja vikna fyrirvara á heimasíðu félagsins og á samfélagsmiðlum. Berist lagabreytingatillögur verða þær kynntar samhliða boðuninni. Ennfremur verður auglýst eftir framboðum í þeirri auglýsingu, en framboðsfrestur rennur út viku fyrir allsherjarþing. Framboðum skal skila til kjörnefndar, en í henni sitja Unnar Reynisson gjaldkeri, Jökull Tandri Ámundason Dalverjagoði og Haukur Bragason Lundarmannagoði.

Goðar Ásatrúarfélagsins krefjast þess að stjórnvöld grípi tafarlaust til aðgerða gegn Ísrael og þjóðarmorði á palestínsku þjóðinni. Þögn og aðgerðaleysi jafngildir samsekt, Ísland má ekki sitja hjá. Við krefjumst þess að stjórnvöld beiti sér af fullum þunga á alþjóðavettvangi til að stöðva ofbeldið, vernda saklausa borgara og tryggja að mannhelgi og mannréttindi séu virt.
Jökull Tandri Ámundason Dalverjagoði var á fundi lögréttu kvöldið 11. september kjörinn sem nýr staðgengill Allsherjargoða. Hann hlaut vígslu sem Dalverjagoði 2023. Jökull Tandri er matreiðslu- og framreiðslumeistari að mennt með mikla reynslu úr framkomu og félagsstarfi. Hann er 35 ára gamall og er yngsti goði Ásatrúarfélagsins.
Alda Vala Ásdísardóttir Hvammverjagoði var áður í hlutverki staðgengils en hún lét af starfi fyrr í sumar að eigin ósk og er henni þakkað fyrir vel unnin störf
Sumarlokun skrifstofu og í hofinu er frá mánudeginum 30. júní til og með mánudagsins 11. ágúst.
Þingblót verður haldið á Þingvöllum að venju Þórsdag í 10. viku sumars, sem fellur á 26. júní.
Blótið hefst kl. 18.
Safnast verður saman við flötina að neðan kl. 17:30 og þaðan gengið upp í Lögberg.
Það gæti orðið vætusamt svo blótgestir eru beðnir að klæða sig eftir veðri.
Að lokinni athöfn verður gengið til blótveislu á vellinum, boðið verður upp á grillaðar pylsur og drykki.
Allir velkomnir.
Sumarsólstöður eru 21. júní n.k. og verður víða blótað:
Blót á Þingvöllum verður þórsdag, 10. viku sumars og verður auglýst sér.